Bloggsíða Mána
Leikir og laga textar
Hlustaðu í beinni
16.05.2008 13:52:40 / bryndisla

Landsmót hestamanna

Nú fer að líða að landsmóti og langar mig til að kanna hvar Mána menn ætla að tjalda. Það væri gaman að heyra frá ykkur hvort að þið eruð búin að taka frá tjaldsvæða pláss eða hvort að þið ætlið að gera það.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 15:05:37 / beggi

sms / email addressur

 

vegna þess að illa hefur gengið að koma sms sendingum til félagsmanna höfum við ákveðið að safna frekar email addressum 

endilega sendið á mig email addressur ykkar og þeirra sem þið vitið að eru í hestamannafélaginu Mána svo hægt sé að koma skilaboðum og fréttum betur á milli

sendið á beggi@heklakef.is ef þið viljið vera með í póstlistanum

p.s munið framhaldsaðalfundinn í kvöld kl 20:00


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 20:26:53 / bryndisla

Árshátíð Mána

JÆJA NÚ LÍÐUR SENN AÐ HINNI STÓRSKEMMTILEGU ÁRSHÁTÍÐ MÁNA. HVERNIG ER STEMMNINGIN ÞETTA ÁRIÐ ?? ER FÓLK FARIÐ AÐ LEITA AF GRÍMUBÚNINGI FYRIR KVÖLDIÐ ??

HEYRST HEFUR AÐ TÓI, GUNNAR PÉTUR OG HAUKUR VERÐA MJÖG SKRAUTLEGIR OG ER FÓLK ORÐIÐ MJÖG SPENNT AÐ MÆTA BARA TIL AÐ SJÁ ÞÁ  :lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 10:47:18 / beggi

tekið inn af grundinni

Jæja þá byrjar fjörið

Tekið verður af Mánagrundarbeitinni á laugardaginn 8 des kl 12:00

hafið samband við snorra í síma 861-2030 fyrir nánari upplýsingar


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 09:55:22 / beggi

Spjallfundur vegna reiðhallarbyggingar á Mánagrund

Munið fundinn í kvöld í samkomuhúsi að Mánagrund kl 20:00

kv Byggingarnefnd Mána


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 19:31:57 / liga

Myndir

Myndir frá Gæðingakeppni Mána og Íþróttamót Mána komnar á síðuna. Ef að þið hafið einhverjar myndir frá keppnum og viljið láta birta þær hér, endilega hafið samband við mig liga.liepina@gmail.com 

 

kv, Liga

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 01:32:29 / beggi

Félagsfundur Mána

Munið félagsfundinn í kvöld kl 20 í samkomuhúsinu á Mánagrund

Málefni fundarins er reiðhallarmál, bygging nýrrar reiðhallar

 

kv stjórnin


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 12:00:44 / beggi

Íslandsmót fullorðinna Dalvík

 

 

Skráning á Íslandsmót fullorðinna verður í síma 861-2030  fram   til kl 21.00 á fimmtudaginn 28/6 fyrir hesstamannafélagið Mána.

Munið að hrossin verða að vera grunnskráð, skráningagjöld 4500 kr pr grein

Kv  Mótanefnd Mána                                                                 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 10:36:11 / Birkir

Myndir

Ef einhverjir eiga myndir úr hestaferðum ársins til að setja inn á heimasíðu Mána, þá væri vel þegið að fá þær sendar á email bm@icegroup.is

 Með fyrirframm þökk

Ferðanefnd Mána

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 09:37:08 / Birkir

Jónsmessuferð

 

Jónsmessuferð!! 

Jæja Mánafélagar,

Nú er kominn tími til að fara í smá útreiðartúr!

Föstudaginn 22. Júní farið frá hesthúsahverfinu í Grindavík kl:1600 og riðið til Vigdísarvalla.

Laugardagur 23. Júní riðið góður hringur um nágrenni Vigdísarvalla.

Farið verður í leiki og nóg um að vera!

Sunnudagur 24. Júní riðið til baka til Grindavíkur.  (tími óákveðinn).

Allir hvattir til að hafa með sér góða skapið og ekki verra ef allir gítarfærir hefðu með sér gítarinn.

Allar nánari upplýsingar gefur Steinþór í síma 8470360

Sjáumst hress!

Ferðanefnd Mána

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 13:38:42 / beggi

Íslandsmót Yngri flokka 2007

Skráning á Íslandsmót yngri flokka hjá Hestamannafélaginu Mána verður þriðjudaginn 12. júní reiðhöllinni frá klukkan 20:00 til 21:00.

  Tekið er einnig við skráningum  í síma 861-2030 og eða 825-0011

Skráningargjald er krónur 3.000,- á skráningu og skráning telst ekki gild fyrr en skráningargjald er greitt 

Keppendum er bent á að öll hross þurfa að vera grunnskráð og að gefa þarf upp ISnúmer við skráningu. 

Keppt verður í eftirfarandi greinum: 

Barnaflokkur (13 ára á keppnisárinu og yngri):

Tölt T1, fjórgangur V1 og fimi A.

Unglingaflokkur (14-17 ára á keppnisárinu):

T ölt T1, fjórgangur V1, fimmgangur F1, gæðingaskeið PP1 og fimi A.

Ungmennaflokkur (18-21 árs á keppnisárinu):

Tölt T1, slaktaumatölt T2, fjórgangur V1, fimmgangur F1, gæðingaskeið PP1, 100 m skeið PP2 og fimi A2.  

Mótshaldarar áskilja sér rétt til að fella niður keppnisgreinar ef þátttaka er ekki næg.  

Kveðja,

Stjórn Mána


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 07:44:05 / snorri

Beitin

Beitin opnar á sunnudaginn 11/6 milli kl 12 og 13  upplýsingar í sima 861-2030

Kv Snorri


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 13:41:01 / beggi

Reðskóli Mána 2007

Reiðskóli Mána 

Í sumar verða haldin reiðnámskeið á Mánagrund fyrir börn og unglinga, 7 ára og eldri. 

Á námskeiðunum læra þátttakendur umhirðu hestsins og flestu því sem við kemur því að umgangast hann.

Einnig verður kennt hvernig sitja eigi hest og farið í reiðtúra. 

Búnaður:

Börnin fá allan þann búnað sem til þarf en þurfa að vera klædd eftir veðri.

Góð aðstaða er við Mánagrund, bæði innanhúss og utan.  

Boðið verður uppá eins og tveggja vikna námskeið og stendur námskeiðið yfir í tvo tíma í senn.

Hægt verður að velja um að vera fyrir eða eftir hádegi. 

Reiðnámskeiðin hefjast 11. júni og skráning er hafin. 

Nánari upplýsingar og skráning:

Sigurlaug Anna       sími: 891-8757 

Guðbjörg                   sími: 896-8588

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 13:10:34 / beggi

Álver í Helguvík

Kynningarfundur um álver í Helguvík       

Kæru Mánafélagar  

Eins og flestum er kunnugt stendur til að byggja álver í Helguvík, skammt frá hesthúsahverfi okkar Mánamanna. 

Forsvarsmenn Norðuráls ætla að hitta okkur Mánamenn og kynna okkur álversuppbygginguna í Helguvík með sérstakri áherslu á áhrif á hross og menn. 

Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Mána, fimmtudaginn 7 júní, klukkan 19:00.  

Hvetjum alla Mánamenn til að mæta 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 10:32:22 / beggi

Dagskrá Hestaþings Mána og Sparisjóðsins

Laugardagur 2. Júní

Kl. 12.00  

B-flokkur áhugamenn               

Ungmenni                

B-flokkur                

Unglingar                 

 Kaffihlé 30 mín                 

Barnaflokkur                

 A-flokkur áhugamenn               

A-flokkur  

Kl. 19.00  

Grillveisla í félagsheimilinu   

Sunnudagur 3. Júní

Kl. 13.00  

Tamningaflokkur                

 Teymingaflokkur                

Pollaflokkur                                  

Úrslit        

KL.:14.00  

B-flokkur áhugamenn                  

 Ungmennaflokkur                        

B-flokkur                                      

Unglingaflokkur                

Barnaflokkur                

A-flokkur áhugamenn               

 A-flokkur  

Kveðja Mótanefnd Mána 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7